Ráðgjafaþjónusta iðjuþjálfa
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi
Guðrún Jóhanna býður upp á ráðgjöf varðandi stuðningstæki og aðstoð við umsóknir til Sjúkratrygginga, ásamt ráðleggingum varðandi iðju og athafnir dagslegs lífs og félagslega þátttöku.
Guðrún starfar hjá HeimaStyrk sem er á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnafirði og í Heilsuklasanum í Reykjavík. Viðtölin fara fram á öðrum hvorum staðnum eða í gegnum síma eða fjarfundarbúnað.
Félagsmenn í Parkinsonsamtökunum geta pantað tíma hjá Guðrúnu í gegnum samtökin með því að fylla út formið hér fyrir neðan. Í framhaldinu verður haft samband og fundinn viðtalstími.
Fullgildir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum fá 5 tíma endurgjaldslaust á hverju almanaksári hjá ráðgjöfum samtakanna.