Raddþjálfunarnámskeið hefst 21. mars

Parkinsonsamtökin bjóða félagsmönnum að sækja nýtt námskeið í raddþjálfun sem hefst mánudaginn 21. mars kl. 13 og verður vikulega í 6 vikur. Opið er fyrir skráningu á námskeiðið.
 
Það er hún Valdís Arnardóttir hjúkrunarfræðingur og raddþjálfi sem leiðir námskeiðið, en hún hefur áralanga reynslu í raddþjálfun einstaklinga og hópa auk þess sem hún starfar á Landspítalanum sem hjúkrunarfræðingur. Hún hlakkar mikið til að fá að miðla sinni þekkingu og kenna góðar aðferðir til að styrkja röddina.
 
Námskeiðið er ætlað fólki með parkinson sem vill styrkja röddina og læra aðferðir til að viðhalda góðum raddstyrk. Ath. að fjöldi þátttakenda er takmarkaður en námskeiðið verður endurtekið síðar.
 
Næsta námskeið hefst 21. mars kl. 13-14
Námskeiðsstaður: Taktur í Lífsgæðasetri St. Jó, 3. hæð
Verð: 5.000 kr.
http://bit.do/raddnamsk-03-2022