PARKINSON 101: Fræðsla fyrir fólk með Parkinson, nýgreinda og aðstandendur þeirra verður haldið á Kaffi Nauthól þriðjudaginn 8. október kl.16:00-18:00.
Námskeiðið er fyrir þau sem eru á fyrstu stigum sjúkdómsins, hafa fengið greiningu nýlega eða telja sig hafa þörf fyrir fræðslu um Parkinson.
Sérfræðingar og fagfólk fræða um sjúkdómseinkenni og meðferð, endurhæfingu og úrræði.
Fyrirlesarar:
- Anna Björnsdóttir, taugalæknir
- Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts
- Andri Þór Sigurgeirsson, sjúkraþjálfari
- Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn en kostar 5.000 kr. fyrir aðra. Á staðnum verður hægt að skrá sig í samtökin og greiða 5.000 kr. félagsgjald eða greiða 5.000 kr. fyrir námskeiðið. Tekið verður á móti greiðslum með posa. Það er nauðsynlegt fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu.
Staður: Kaffi Nauthóll, Nauthólsvegi 106, 102 Reykjavík kl. 16:00.
Hægt er að skrá sig með því að fylla út formið hér fyrir neðan eða með því að skrá sig inn á Abler (virkar bara fyrir félagsmenn).
Einnig er hægt að skrá með því að hringja í s. 552-4440 eða með því að senda tölvupóst á parkinson@parkinson.is.