Opið hús á Selfossi 31. maí

Hópurinn Parkar á suðurlandi ætlar að hittast miðvikudaginn 31. maí kl. 17:00 í sal í Grænumörk 5 á Selfossi. Hópurinn er nýr og ekki um formlega dagskrá að ræða heldur verða umræður um hvernig þessi hópur getur unnið og komið að notum fyrir fólk sem býr á svæðinu. Allir áhugasamir hvattir til að mæta, bæði fólk með Parkinson og aðstandendur. Verið hjartanlega velkomin.