Fræðsla fyrir ungt fólk með Parkinson

Þriðjudagskvöldið 6. júní munu Anna Björnsdóttir taugalæknir, Andri Þór Sigurgeirsson sjúkraþjálfari og Ágústa Kristín Andersen forstöðumaður Takts sjá um fræðslu fyrir þau sem hafa greinst ung með parkinson (young onset parkinson) – oft miðað við 55 ára og yngri, og maka þeirra. Umræður og spurningar á eftir.
 
Fræðslan fer fram í Lunga, á 2. hæð Lífsgæðaseturs St. Jó. í Hafnarfirði kl 20.00.
 
Verið hjartanlega velkomin!