Ný stundaskrá

Ný stundaskrá tók gildi 7. apríl og inniheldur fjölbreytta og spennandi dagskrá.

Meðal nýrra og nýlegra tíma í dagskrá eru:

  • Jafnvægisæfingar
  • Borðtennis
  • Bandvefslosun
  • Handavinnuhópur
  • Föstudagsfjör
  • Leikfimi

Hægt er að skoða alla stundatöfluna hér:
https://parkinson.is/stundaskra/

Athugið að skrá þarf í hvern dagskrárlið. Þeir sem ekki hafa nýtt sér þjónustuna áður eru velkomnir að hafa samband í síma 552-4440 til að fá nánari upplýsingar. Allir tímarnir fara fram í Lífsgæðasetri St. Jó nema annað sé tekið fram.

Hádegismatur alla virka daga

Nú er einnig boðið upp á heitan mat í hádeginu alla virka daga. Maturinn kemur frá Kokkarnir veisluþjónusta.

Nauðsynlegt er að skrá sig í matinn fyrir kl. 9:00 samdægurs í Abler-appinu eða með því að hringja í síma 552-4440.

Verð:

  • 2.000 kr. fyrir hvert skipti
  • Klippikort: 10 skipti á 18.000 kr. (1.800 kr. pr. skipti)