Námskeið fyrir nýgreinda mið. 12. okt.

Námskeið fyrir nýgreinda og aðstandendur þeirra verður haldið á Kaffi Nauthól miðvikudaginn 12. október kl. 16:00–18:00.

Námskeiðið er fyrir þau sem eru á fyrstu stigum sjúkdómsins, hafa fengið greiningu nýlega eða telja sig hafa þörf fyrir fræðslu um Parkinson.

Sérfræðingar og fagfólk fræða um sjúkdómseinkenni og meðferð, endurhæfingu og úrræði.

Fyrirlesarar:
Anna Björnsdóttir, taugalæknir
Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts
Andri Þór Sigurgeirsson, sjúkraþjálfari hjá Takti sjúkraþjálfun
María Rúnarsdóttir, félagsráðgjafi hjá Takti

Aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum en 5.000 kr. fyrir aðra. Þau sem eru ekki skráð í félagið greiða aðgangseyri á staðnum, tekið verður á móti greiðslum með posa. Allir sem vilja tryggja sér sæti á námskeiðinu verða að skrá sig hér eða með því að hringja í s. 552-4440. Skráningu lýkur þriðjudaginn 11. október kl. 16:00.

Boðið verður upp á léttar veitingar. Verið velkomin.