Fræðsla um Parkinson fyrir nýgreinda og aðstandendur verður í Golfklúbbnum Oddi á Urriðavelli í Garðabæ, miðvikudaginn 15. maí kl. 15:00–17:30
Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna stendur fyrir fræðslu fyrir þau sem eru á fyrstu stigum sjúkdómsins, hafa fengið greiningu nýlega eða telja sig hafa þörf fyrir fræðslu um Parkinson sjúkdóminn, meðferð hans og endurhæfingu.
Fyrirlesarar verða:
- Anna Björnsdóttir taugalæknir
- Andri Þór Sigurgeirsson sjúkraþjálfari
- Gyða Elín Bergs talmeinafræðingur
- Ágústa Kristín Andersen hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts
Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn en kostar 5.000 kr. fyrir aðra, greitt með posa á staðnum. Allir sem telja sig eiga erindi eru hvattir til að mæta, og athugið skráning er nauðsynleg.