Þriðjudaginn 1. október kl:17.00 verður fræðsla fyrir uppkomin börn fólks með Parkinson.
Fræðslan er miðuð að uppkomnum börnum/tengdabörnum fólks með Parkinson þar sem farið er yfir helstu einkenni sjúkdómsins, framgang og algeng atriði sem aðstandendur standa frammi fyrir og veitt hagnýt ráð til að takast á við samtöl og aðstæður.
Gefið er rými fyrir spurningar úr sal.
Umsjón: Soffía Bæringsdóttir, fjölskyldufræðingur MA og Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts endurhæfingar Parkinsonsamtakanna.
Staður: Lunga, salur á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði kl:17.00.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum en nauðsynlegt er að skrá sig.
Smelltu hér fyrir neðan til að skrá þig í gegnum Abler.
Einnig er hægt að skrá með því að hringja í s. 552-4440 eða með því að senda tölvupóst á parkinson@parkinson.is.