Date

28.02.2023
Lokið

Time

10:30 - 11:30

Staðsetning

Lífsgæðasetur St. Jó
Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður

Námskeið: Að næra “delluna” sína

Að næra “delluna” í sér, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 10:30 í fundarsalnum Lunga á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó.

Lýsing: Í hverju gleymdir þú þér sem barn? Hvað veitir þér ánægju í dag? ,,Dellur“ hafa stundum fengið neikvætt hlaðna merkingu í daglegu tali en í ,,dellum“ felast heilmikil lífsgæði. 

Nærandi athafnir geta falist í einhverju sem hefur fylgt okkur í gegnum lífið en þær geta líka birst í nýrri iðju og nýjum áhugamálum. Hvar gleymir þú þér í flæði? 

Fjallað verður um nærandi athafnir og hvernig þær hafa jákvæð áhrif á heilsu, vellíðan, endurheimt og streitulosun. Hvað eru nærandi athafnir fyrir þér?

Aðgangur er ókeypis og opinn fólki með Parkinson og aðstandendum sem eru skráðir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum.

Kennarar:
Guðbjörg Björnsdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir
eigendur og þjálfarar hjá Saga Story House

—-

Leiðbeiningar við skráningu:

1. Veldu dagsetningu / dagsetningar ef það er í boði

2. Veldu 1 miða. Ath. ekki er hægt að skrá fleiri í einu. Ef það þarf að skrá annan einstakling þá þarf að endurtaka ferlið.

3. Ýttu á NEXT

4. Skráðu nafn, netfang og símanúmer þátttakanda

5. Ýttu á SUBMIT

6. Takk fyrir bókunina. Þú ert núna skráð/ur og færð staðfesingu á tölvupósti.

Leiðbeinendur

Flokkar

Umsjón

Taktur
Taktur
Phone
552-4440
Email
parkinson@parkinson.is
Website
https://parkinson.is