Endurhæfing er ekki lúxus heldur lífsnauðsyn

Ný skýrsla um ávinning hins opinbera af sérhæfðri endurhæfingu Parkinsonsamtakanna
  • Fjöldi Parkinsonsjúklinga tvöfaldast og kostnaður ríkisins vegna sjúkdómsins gæti farið úr 5 í 10 milljarða króna á næstu árum.

  • Sérhæfð endurhæfing dregur úr einkennum og kostnaði og er lykilþáttur í meðferð Parkinson, bætir lífsgæði og dregur úr álagi á heilbrigðiskerfið.

  • Parkinsonsamtökin veita sérhæfða og hagkvæma þjónustu sem sparar ríkinu um 400 milljónir króna á ári, en opinber framlög duga skammt og reksturinn er að mestu fjármagnaður með sjálfsaflafé.

  • Áhyggjuefni ef stefnumótun stjórnvalda tekur ekki mið af hagkvæmni og mikilvægi þjónustu sjúkdómasamtaka á borð við Parkinsonsamtökin.

Skýrslan “Heilbrigðisþjónusta sem borgar sig – ávinningur endurhæfingar Parkinsonsamtakanna“ var unnin að ósk Parkinsonsamtakanna af Ágústi Ólafi Ágústssyni, hagfræðingi.

Smelltu á hlekkinn til að sækja skýrsluna: