Stuðningshópur fyrir aðstandendur mið. 29. maí

Stuðningshópur fyrir aðstandendur verður miðvikudaginn 29. maí kl. 17-18 í Setrinu, Hátúni 10.

Sjúkdómar og hamlandi eiginleikar sem fylgja þeim geta valdið streitu, vanmætti og þunglyndi, ekki bara hjá þeim sem glímir við afleiðingar langvarandi sjúkdóms, heldur einnig hjá fjölskyldumeðlimum. Það er svo margt sem breytist þegar foreldri og/eða maki á besta aldri getur ekki lengur verið eins virkur og hann var áður.
Það getur reynt á allan tilfinningaskalann og sveiflað aðstandendum frá pirringi til vanmáttar, samkenndar og samviskubits.
Möguleikar og draumar um hvað átti að byggja upp saman, njóta, ferðast geta fjarað út eða þannig upplifa margir aðstandendur stöðuna. Tilfinningin fyrir uppgjöf getur ef ekki er að gáð, ýtt undir einangrun og einmannaleika sem er engum til gagns.
Í dag hefur verið sýnt fram á að langvarandi vanmáttur og streita ýta undir sjúkdóma, því er mikilvægt að opna fyrir samtalið og skoða hlutina í víðu samhengi. Fá upplýsingar um þann stuðning sem í boði er og hvað aðrir hafa tileinkað sér í svipaðri stöðu
Aðstandendafundir eru kjöraðstaða til að opna á málin með fólki sem veit hvað verið er að tala um, fá ráð, hvatningu og finna leiðir til að njóta sín, þrátt fyrir breyttar aðstæður.