Búum vel – Erindi um erfðamál og búsetuskipti. Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður.

Vilt þú vita hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Hvaða reglur gilda og hverju er hægt að breyta?
 
Farið verður yfir meginreglur erfða- og hjúskaparlaga og leitast verður við að svara helstu spurningum sem vakna varðandi erfðamál og hvaða reglur gilda um erfðaskrár og kaupmála.
Þá er fjallað um stöðu sambúðarfólks við fráfall maka og hverjir eru möguleikar varðandi erfðarétt.
 
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður er stofnandi fyrirtækisins BÚUM VEL sem er sérhæfð lögfræðiþjónusta vegna búsetuskipta. Þá veitir hún viðskiptavinum stuðning og ráðgjöf við dánarbússkipti og ýmsa löggerninga á sviði erfðaréttar.
 
Fyrirtækið veitir nýja tegund þjónustu á íslenskum fasteignamarkaði, það er ekki fasteingasala, heldur sérhæfð lögmanns og fjármála –þjónusta. Viðskiptavinir njóta aukinnar þjónustu við fasteignasölu, en greiða ekki aukalega fyrir þá þjónustu.
 

Fyrir hverja: Námskeiðið er fyrir fólk með parkinson og parkinsonskylda sjúkdóma – og maka þeirra sem eru skráðir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum.

Verð: 0 kr. Nauðsynlegt er fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti.

Staður og stund: miðvikudaginn 25. október Kl:13.00 í Lunga, salur á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.