Breyting á hádegismatnum

Eftir páska verður ekki boðið upp á hádegismat í hlaðborði á mánudögum og fimmtudögum eins og verið hefur. Þess í stað er fólk hvatt til að taka með sér nesti en einnig verður í boði að kaupa tilbúna rétti sem hægt er að hita upp, skyr, næringardrykki, ávexti og þess háttar á góðum kjörum, mánudaga til fimmtudaga. Þetta er gert til að einfalda hlutina og auðvelda aðgengi að léttum hádegismat fleiri daga í viku.