Bleikur dagur Parkinsonsamtakana verður haldinn 18. október kl:13:00.
Við ætlum að eiga notalega samveru, hittast og hafa gaman saman.
Allir hvattir til að mæta í einhverju bleiku, verðlaun veitt fyrir frumlegustu bleik-heitin.
Viðburðurinn er öllum opinn, félagsmönnum, aðstandendum og þeim sem eru að kynnast starfsemi Takts.
Bleiki dagurinn kl:13.00 á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Ekki þarf að skrá sig – bara mæta.