Hrekkjavökukaffi Parkinsonsamtakanna þriðjudaginn 29. október kl:14.00 í Straumi á 3. hæð í St. jó.
Við hvetjum þá sem þora að mæta í búning og fær frumlegasti búningurinn verðlaun. Ætlum við að eiga notalega samveru og hafa gaman saman.
Boðið er upp á kaffi og með því og er skráning nauðsynleg, 500 kr gjald á einstakling, posi á staðnum.
Viðburðurinn er öllum opinn, félagsmönnum og aðstandendum.
Verið hjartanlega velkomin.