Opið hús á Selfossi 30. október kl. 13:30
Hópurinn “Parkar á Suðurlandi” stendur fyrir opnu húsi miðvikudaginn 30. október kl. 13:30 í Grænumörk 5 á Selfossi. Opnað húsið er fyrir fólk með Parkinson og aðstandendur þeirra. Aðgangur er ókeypis og ekki þarf að skrá sig fyrirfram.
Á fundinum gefst tækifæri til að hitta aðra sem standa í svipuðum sporum. Það er frábær leið til að byggja upp tengslanet og kynnast fólki.
Hópurinn er með Facebook-síðu, þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar. Við hvetjum alla áhugasama til að mæta á opna húsið á Selfossi.