Date
- 07.12.2022
- Lokið
Time
- 10:00 - 11:00
Staðsetning
Núvitundarnámskeið 23. nóvember–7. desember
Núvitund – að læra að lifa með því sem er
3 vikna núvitundarnámskeið í umsjón Önnu Dóru Frostadóttur sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og núvitundarkennari. Námskeiðið hefst mið. 23. nóvember kl. 10 í Takti og verður vikulega í þrjú skipti.
- Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynna sér nálgun núvitundar til að takast á við áskoranir lífsins og auka almenn lífsgæði sín.
- Sýnt hefur verið fram á að núvitundarþjálfun dregur úr streitu og bætir almenna vellíðan – eins og aukna hugarró og sátt við lífið eins og það er.
- Núvitundarþjálfun hjálpar okkur jafnframt að staldra við “hér og nú” og lifa í auknum mæli í samræmi við lífsgildi okkar. Styður okkur í því að vanda okkur í því að vera þær manneskjur sem við viljum vera.
Tímar:
- Miðvikudaginn 23. nóv. kl. 10–11
- Miðvikudaginn 30. nóv. kl. 10–11
- Miðvikudaginn 7. des. kl. 10–11
Hvar: Í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði (sjá kort)
Fyrir hverja: Námskeiðið er fyrir fólk með parkinson og parkinsonskylda sjúkdóma – og maka þeirra.
Verð: 0 kr. Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Nauðsynlegt er fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu.
Skráningin á námskeiðið virkar fyrir alla 3 tímana. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hvern tíma eins og þegar um opna tíma er að ræða.
Labels
Leiðbeinandi
-
Anna Dóra Frostadóttirsérfræðingur í klínískri sálfræði og núvitundarkennari