Ráðgjafaþjónusta sálfræðinga

Í ráðgjafateymi Parkinsonsamtakanna starfa tveir sálfræðingar:

Viðtöl við sálfræðinga fara fram á Samskiptastöðinni í Skeifunni 11a eða í gegnum síma eða fjarfundarbúnað.

Félagsfólk í Parkinsonsamtökunum getur pantað tíma í gegnum samtökin með því að fylla út formið hér fyrir neðan hjá viðkomandi sálfræðingi. Í framhaldinu verður haft samband og fundinn viðtalstími.

Félagsfólk í Parkinsonsamtökunum fær 5 viðtalstíma hjá ráðgjöfum samtakanna endurgjaldslaust á hverju almanaksári. Hægt er að fá fleiri en einn tíma hjá hverjum fagaðila, allt eftir þörfum.

Erna Björk Einarsdóttir

  • Greining og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum
  • Kvíði
  • Félagsfælni
  • Þunglyndi
  • Lágt sjálfsmat
  • Sorg
  • Streita, álag og kulnun

Sævar Már Gústavsson

  • Greining og meðferð á sálrænum vanda fullorðina
  • Almenn kvíðaröskun
  • Félagsfælni
  • Heilsukvíði
  • Ofsakvíðaröskun
  • Þunglyndi
  • Áráttu- og þráhyggjuröskun