Parkinsonkaffi mið. 23. febrúar

Parkinsonkaffi verður miðvikudaginn 23. febrúar kl. 14:00-15:00 hjá Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó. Gengið er inn í húsið bakdyramegin sem snýr að Hringbraut.

Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundur les upp úr bókinni sinni Jarðvísindakona deyr sem kom út í fyrra.

Engin skráning, aðgangur ókeypis og opinn öllum. Verið velkomin.