Opinn fræðslufundur og kaffispjall verður þriðjudaginn 15. febrúar kl. 14:00 í Safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju (sjá kort).
María Rúnarsdóttir félagsráðgjafi heldur erindið Parkinson, félagsleg virkni og stuðningur. Boðið verður upp á kaffi og spjall eftir fundinn.
Þátttakendur eru beðnir um að huga vel að persónubundnum sóttvörnum. Salurinn er stór og auðvelt að halda góðu bili á milli gesta en skv. sóttvarnarreglum er grímuskylda eða 1m fjarlægðarmörk milli einstaklinga.
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum en til að auðvelda skipulagið eru þátttakendur beðnir um að skrá sig á forminu hér fyrir neðan.
Uppfært: Skráningu er lokið.