Vorhátíð 17. apríl 2024

 

Vorhátíð Parkinsonsamtakanna verður haldin miðvikudaginn 17. apríl kl. 18:00 í veislusalnum Gullhömrum, í Grafarholti.

Boðið verður upp á veislumat, í aðalrrétt er lambahryggvöðvi með gratinkartöflum, rótargrænmeti og lambasoðsósu. Í eftirrétt er heit eplakaka með karamellusósu og vanilluís.  Það mun vera þjónað til borðs.

Jóhann Alfreð Kristinsson skemmtikraftur og uppistandari verður veislustjóri, Wally trúður verður með skemmtiatriði og Diskótekið Dísa sér um danstónlist fram eftir kvöldi.

Frábært skemmtun fyrir félagsmenn,  aðstandendur og vini og tilvalið kvöld til að skapa góðar minningar.