Jólahlaðborð

Jólahlaðborð Parkinsonsamtakanna verður haldið fimmtudaginn 27. nóvember kl. 12:00 á hádegi á Hótel Kríunesi við Vatnsenda í Kópavogi (sjá kort).

Boðið verður upp á glæsilegt jólahlaðborð, ásamt gosdrykkjum, kaffi og tei.

Til að koma okkur í jólaskapið mun Lúðrasveit Hafnarfjarðar spila falleg jólalög. Trúbadorinn Ásgeir Kr. mun spila undir og leiða samsöng þar sem við syngjum saman jólalög sem allir kunna og sr. Bolli Pétur Bollason mun flytja jólahugvekju.

Fyrir hverja: Opið öllum – bæði félagsmönnum og velunnurum.

Staðsetning: Hótel Kríunes

Verð: 8.000 kr. á mann.

Athugið að fjöldi miða er takmarkaður svo það er gott að tryggja sér miða í tæka tíð.

Kaupa miða

Date

27.11.2025
Lokið

Time

12:00 - 14:00

Staðsetning

Hótel Kríunes
Kríunesi við Vatnsenda
Website
http://www.kriunes.is