Parkinsonsamtökin fagna stofnun Tónheilsusjóðs STEFs sem hefur það að markmiði að efla aðgengi að tónlist í heilsueflandi tilgangi. Í vor var í fyrsta sinn úthlutað úr sjóðnum og hlutu sjö verkefni styrk.
Sjóðurinn styður tónlistarfólk, stofnanir og samtök sem nýta tónlist sem hluta af heilsueflingu og vellíðan, meðal annars á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, í endurhæfingu og víðar þar sem unnið er að bættri lýðheilsu.
Tónheilsusjóðurinn er stofnaður fyrir frumkvæði hjónanna Andrésar Arnalds og Guðrúnar Pálmadóttur. Hugmynd þeirra var hrint í framkvæmd af börnum þeirra í samstarfi við STEF og kemur stofnframlag sjóðsins frá þeim hjónum.
Við hjá Parkinsonsamtökunum fögnum þessari mikilvægu viðbót við íslenskt menningar- og heilbrigðisstarf. Sérstaklega gleður okkur að sjá þetta framtak verða að veruleika þar sem Andrés Arnalds sat í stjórn Parkinsonsamtakanna um árabil og erum við honum afar þakklát fyrir það framlag hans í þágu samtakanna.
Í umfjöllun um stofnun sjóðsins sagði Ólafur Arnalds að foreldrar hans hefðu sjálf upplifað hvað tónlist getur haft jákvæð áhrif á líðan. Guðrún glímir við Alzheimer og Andrés við Parkinson og von fjölskyldunnar er að sjóðurinn stuðli að aukinni áherslu á tónlist sem mikilvæga leið til að efla heilsu og lífsgæði.
Við óskum styrkþegum innilega til hamingju og þökkum Andrési Arnalds, Guðrúnu Pálmadóttur og fjölskyldu þeirra fyrir þetta mikilvæga framtak sem mun án efa nýtast mörgum um ókomin ár.
Hjónin Guðrún Pálmadóttir og Andrés Arnalds. Ljósmynd: STEF