Jafningjastuðningshóparnir (konuhópur og karlahópur) hittast í sameiginlega einu sinni í mánuði, til skiptist á mánudögum og þriðjudögum. Nú er komið að konuhópnum að bjóða karlahópnum til samveru mánudaginn 1. desember kl. 13:00 sem kemur í staðinn fyrir karlahópinn 2. desember sem fellur þá niður.
Markmiðið með samverunni er að hittast, spjalla og kynnast öðrum sem standa í svipuðum sporum. Samvera og jafningjastuðningur skapa vettvang fyrir jákvæð tengsl, skilning og uppbyggileg samskipti.
Fyrir hverja: Konur og karlar með Parkinson
Tími: Mánudagur 1. desember kl. 13:00–13:50
Staðsetning: Lífsgæðasetur St. Jó, 3. hæð, Suðurgata 41, Hafnarfjörður
Skráning: Ekki þarf að skrá sig – bara mæta