Raddþjálfun hjá talmeinafræðingi
Gyða E. Bergs
Fyrir hverja: Fólk með Parkinson og skylda sjúkdóma.
Gyða veitir greiningu, ráðgjöf, fræðslu og einstaklingsmiðaða þjálfun vegna tal- og raddmeina. Hún veitir einnig ráðgjöf og þjálfun vegna kyngingarerfiðleika.
Raddþjálfunin byggist á Lee Silverman Voice Treatment (LSVT®) en Gyða hefur fengið réttindi til að nota þessa aðferð í þjálfun. Gyða starfaði áður á taugasviði Reykjalundar en er nú sjálfstætt starfandi.
Viðtöl fara fram í ráðgjafaherbergi á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði eða í gegnum síma eða fjarfundarbúnað.
Gyða starfar samkvæmt rammasamningi við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ), og fara greiðslur vegna þjónustunnar eftir gildandi gjaldskrá SÍ hverju sinni. Upplýsingar um greiðsluþátttöku má finna hér.
Það er ekki nauðsynlegt að vera með beiðni til að panta tíma, en til þess að fá þjónustuna niðurgreidda þarf beiðni frá lækni.
Þegar viðtal hefur verið bókað verður haft samband til að finna hentugan tíma.