Konuhópur
Konuhópur er vettvangur fyrir konur sem eru greindar með Parkinson til að hittast, kynnast og spjalla saman.
Hópurinn hittist hjá Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Tímarnir eru ætlaðir konum með parkinson sem eru félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Nauðsynlegt er að skrá sig í hvern tíma í tímatöflunni.
Til að skrá sig í tíma þarf að hafa aðgang að Abler en hægt er að ná í app í símann sem auðveldar skráningar og gefur fólki góða yfirsýn yfir dagskrána. Nánari upplýsingar um Abler má finna hér. Skráning fer líka fram í gegnum síma 552-4440 (móttaka/skrifstofa).