Hugur og hendur

Hugur og hendur – hópþjálfun með fjölbreyttum æfingum fyrir fólk með parkinson og fræðslu um orkusparandi vinnuaðferðir. Lögð er áhersla á minnisþjálfun, hreyfingu, þrautir, handverk, slökun og hlátur til að auka vellíðan, líkamsstyrk og færni í höndum. 

Tímarnir fara fram hjá Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.

Tímarnir eru niðurgreiddir af fullu fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum en nauðsynlegt er að skrá sig í hvern tíma í tímatöflunni.

Til að skrá sig í tíma þarf að hafa aðgang að Abler en hægt er að ná í app í símann sem auðveldar skráningar og gefur fólki góða yfirsýn yfir dagskrána. Nánari upplýsingar um Abler má finna hér. Skráning fer líka fram í gegnum síma 552-4440 (móttaka/skrifstofa).