Hreyfðu þig í Takti – Ljóð

Í síðustu viku voru Atli Þór Þorvaldsson og Vilborg Jónsdóttir með skemmtilega og fróðlega frásögn frá ferð sinni á heimsmeistaramótið í Parkinson-borðtennis.

Þau byrjuðu kynninguna á því að flytja ljóð sem Atli Þór samdi um glímuna við Parkinson og hversu mikilvægt er að finna skemmtilega hreyfingu til að tileinka sér og stunda í góðra vina hópi. Smelltu á linkinn hér fyrir neðan til að lesa ljóðið eftir Atla.

Þess má geta að nú er borðtennis aftur komið á dagskrá Takts á miðvikudögum kl. 13:00 í Íþróttahúsinu Strandgötu. Tímarnir eru ætlaðir félagsmönnun í Parkinsonsantökunum sem eru greindir með Parkinson og hafa gott jafnvægi og getu til að stunda borðtennis. Tímarnir eru í umsjón þjálfara Takts og eru jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.

Nauðsynlegt er að skrá sig í tímann til að tryggja sér pláss og hægt að skrá sig í gegnum Abler. Þau sem hafa ekki áður komið í borðtennis eða hafa ekki aðgang að skráningarsíðu eða appi geta haft samband við Parkinsonsamtökin í s. 552-4440 eða með tölvupósti á netfangið parkinson@parkinson.is og fengið nánari upplýsingar.

Vilborg og Atli á kynningunni hjá Parkinsonsamtökunum