Góukaffi og ferðasaga frá heimsmeistaramóti

Verði hjartanlega velkomin á notalegt góukaffi þar sem Atli og Vilborg segja frá ferð sinni á heimsmeistaramótið í borðtennis fyrir fólk með Parkinson. Þau munu deila skemmtilegum sögum, upplifunum og innsýn í keppnina og stemninguna á mótinu.

Að erindi loknu verður boðið upp á vöfflukaffi og notalega samveru.

📍 Staðsetning: Parkinsonsamtökin – Lífsgæðasetur St. Jó, 3. hæð
Suðurgata 41, Hafnarfirði

🗓 Fimmtudagur 26. febrúar

Kl. 13:30–15:00

☕️ Verð fyrir vöfflukaffi: 1.000 kr. á mann

Engin skráning – Verið öll hjartanlega velkomin