Ath! Því miður verðum við að fella niður þennan viðburð en aðstandendur geta pantað viðtal hjá ráðgjafa Parkinsonsamtakanna og fengið upplýsingar og ráðgjöf. Verið velkomin: www.parkinson.is/radgjof
Ágústa Kristín Andersen hjúkrunarfræðingur, Bjarkey Heiðarsdóttir iðjuþjálfi og Soffía Bæringsdóttir fjölskyldufræðingur, fjalla um einkenni Parkinson, úrræði og bjargráð, ásamt mikilvægi góðra samskipta og skilnings á félagslegum áhrifum sjúkdómsins.
Fræðslufundurinn samanstendur af stuttum og hnitmiðuðum erindum og í lokin er svigrúm fyrir spurningar og spjall.
Fimmtudaginn 12. febrúar kl. 16:00
Fundarsalurinn Lunga á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41,Hafnarfirði
Verð:
- Félagsmenn: Ókeypis
- Aðrir: 5.000 kr.
- Gerast félagi: 5.000 kr. (aðgangur á fundinn innifalinn)
Hægt er að gerast félagi með því að smella hér en einnig verður hægt að skrá sig í samtökin á staðnum.
Skráning fer fram í síma 552-4440 eða með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan: