![](https://parkinson.is/wp-content/uploads/2024/04/675b9eda-0fc8-4933-8b54-23d9f0c02623-768x402.png)
Þriðjudaginn 7. maí kl:15.00 verður fræðsla fyrir uppkomin börn fólks með Parkinson.
Fræðslan er miðað að uppkomnum börnum/tengdabörnum fólks með Parkinson þar sem farið er yfir helstu einkenni sjúkdómsins, framgang og algeng atriði sem aðstandendur standa frammi fyrir og veitt hagnýt ráð til að takast á við samtöl og aðstæður.
Gefið er rými fyrir spurningar úr sal, einnig verður streymt frá fræðslunni.
Umsjón: Soffía Bæringsdóttir, fjölskyldufræðingur MA og Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts endurhæfingar Parkinsonsamtakanna.
Staður: Lunga, salur á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði kl:15.00.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum en nauðsynlegt er að skrá sig.
Smelltu hér fyrir neðan til að skrá þig í gegnum Abler:
Einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í s. 552-4440 eða með því að senda tölvupóst á parkinson@parkinson.is.
Skráning í streymi
Félagsmenn geta skráð sig í beint streymi með því að fylla út formið hér fyrir neðan og fá þá sendan link með tölvupósti: