Date
- 28.11.2022
- Lokið
Time
- 10:00 - 11:00
Staðsetning
Raddæfingar*
Hópþjálfun og raddæfingar fyrir þau sem vilja styrkja röddina og læra aðferðir til að viðhalda góðum raddstyrk.
Tímarnir hjá Valdísi eru á mánudögum kl. 10:00-10:40 í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum en nauðsynlegt er að skrá sig í hvern tíma til að tryggja sér sæti. Skráning fer fram á forminu hér fyrir neðan eða með því að hringja í s. 552-4440. Ath. að skráning hefst viku fyrir tímann og þá birtist formið hér fyrir neðan.
—-
Leiðbeiningar við skráningu:
1. Veldu dagsetningu / dagsetningar ef það er í boði
2. Veldu 1 miða. Ath. ekki er hægt að skrá fleiri í einu. Ef það þarf að skrá annan einstakling þá þarf að endurtaka ferlið.
3. Ýttu á NEXT
4. Skráðu nafn, netfang og símanúmer þátttakanda
5. Ýttu á SUBMIT
6. Takk fyrir bókunina. Þú ert núna skráð/ur og færð staðfesingu á tölvupósti.
Leiðbeinandi
-
Valdís ArnardóttirRaddþjálfi
Valdís Arnardóttir er hjúkrunarfræðingur og raddþjálfi en hún hefur áralanga reynslu í raddþjálfun einstaklinga og hópa auk þess sem hún starfar á Landspítalanum sem hjúkrunarfræðingur.