Konuhópur
Konuhópur er fyrir konur með parkinson sem hittast vikulega í Takti til að hittast, kynnast og spjalla. Ekki er um formlega dagskrá að ræða heldur er konuhópurinn vettvangur fyrir umræður og eru allar konur með parkinson hjartanlega velkomnar.
Konuhópurinn hittist á mánudögum kl. 13:00-14:00 í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Ekki þarf að skrá sig – bara mæta.