Parkinsonsamtökin bjóða félagsmönnum sem eru skráðir í dagskrá í Takti að panta léttan hádegismat á mánudögum og fimmtudögum í Hjarta á 3. hæð í St. Jó. Boðið er upp á t.d. skyr, brauð og álegg og þess háttar.
Verð er 800 kr. fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Greitt er með posa á staðnum.
Nauðsynlegt er að skrá sig í hádegismatinn svo hægt sé að áætla innkaup. Skráning fer fram á forminu hér fyrir neðan eða með því að hringja í s. 552-4440 (móttaka). Ath. að skráning hefst viku fyrir og þá birtist formið hér fyrir neðan.
—-
Leiðbeiningar við skráningu:
1. Veldu dagsetningu / dagsetningar ef það er í boði
2. Veldu 1 miða. Ath. ekki er hægt að skrá fleiri í einu. Ef það þarf að skrá annan einstakling þá þarf að endurtaka ferlið.
3. Ýttu á NEXT
4. Skráðu nafn, netfang og símanúmer þátttakanda
5. Ýttu á SUBMIT
6. Takk fyrir bókunina. Þú ert núna skráð/ur og færð staðfesingu á tölvupósti.