Endurhæfing komin á dagskrá stjórnvalda – ráðherra tók við skýrslu Parkinsonsamtakanna

Alma Möller heilbrigðisráðherra tók í gær formlega við nýrri skýrslu Parkinsonsamtakanna sem inniheldur ábatagreiningu á sérhæfðu endurhæfingarstarfi samtakanna. Skýrslan var afhent í heilbrigðisráðuneytinu af forsvarsmönnum samtakanna ásamt Ágústi Ólafi Ágústssyni hagfræðingi, sem vann skýrsluna að beiðni Parkinsonsamtakanna.

Við afhendinguna lagði ráðherra áherslu á mikilvægi þess að styrkja endurhæfingu innan heilbrigðiskerfisins. Hún greindi frá því að nýverið hefði verið ráðist í heildarendurskoðun á skipulagi endurhæfingar hér á landi og að afrakstur þeirrar vinnu yrði ný stefnumörkun þar sem bæði sjálfstæðar og opinberar heilbrigðisstofnanir kæmu að borðinu. Einnig kom fram að næsta Heilbrigðisþing í nóvember yrði alfarið helgað endurhæfingu.

Í skýrslunni kemur fram að hver króna sem varið er til endurhæfingar Parkinsonsjúklinga getur skilað sér tífalt til baka fyrir ríkissjóð. Endurhæfing bætir lífsgæði fólks með Parkinson, dregur úr þörf fyrir dýrari úrræði eins og sjúkrahúsinnlagnir, og lækkar lyfjakostnað. Til dæmis getur sólarhringur á Landspítala kostað allt að 190.000 krónur.

Parkinsonsamtökin telja mikilvægt að þessi gögnum studda niðurstaða skýrslunnar skili sér í aðgerðum. Því hyggjast samtökin beita sér gagnvart þeirri fjárlagavinnu sem nú á sér stað innan ráðuneytanna og ræða við þingmenn um aukin framlög til endurhæfingarstarfsins.

Að auki hafa Parkinsonsamtökin sett af stað auglýsingaherferð undir yfirskriftinni:

„Endurhæfing er ekki lúxus – heldur lífsnauðsyn.“