HUGUR OG HENDUR
0 kr.
Á lager
Lýsing
4 vikna námskeið fyrir fólk með parkinson til að efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu. Á námskeiðinu verður minnisþjálfun, hreyfing, þrautir, handverk, slökun og hlátur til að auka vellíðan, líkamsstyrk og færni í höndum.
Í upphafi og lok námskeiðs verða mælingar í boði tengt handstyrk, vitrænni getu og lífsgæðum fyrir þá sem vilja fá mat á sinni færni.
Námskeiðið verður í Takti miðstöð Parkinsonsamtakanna á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði á þessum dögum:
Fim. 16. júní kl. 13-14
Mið. 22. júní kl. 13-14
Fim. 30. júní kl. 13-14
Fim. 7. júlí kl. 13-14
Námskeiðið er niðurgreitt að fullu af Parkinsonsamtökunum er því aðeins í boði fyrir félagsfólk í samtökunum. Hægt er að skrá sig í Parkinsonsamtökin hér.
Athugið að aðeins komast 12 þátttakendur komast á námskeiðið að þessu sinni en það verður endurtekið síðar.