Tilnefningar til Hvatningarverðlauna 2020

Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2020

Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2020 verða afhent á Alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember n.k. Markmiðið með deginum er meðal annars að minna okkur á skuldbindingu okkar um að vinna saman að betri og sjálfbærari heimi, þar sem við njótum öll sömu réttinda.

Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi flokka fyrir 15. september 2020.

Verðlaunaflokkarnir eru fjórir:
• Einstaklingar
• Fyrirtæki og stofnanir
• Umfjöllun og kynningar
• Aðildarfélög ÖBÍ

Nánar um verðlaunin:
Verðlaunin eru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og með því stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Sjálfsagt er að tilnefna sömu aðila og áður hafa verið tilnefndir ef vitað er að þeir séu vel að verðlaununum komnir.

Vinsamlegast sendið tilnefningar á rafrænu eyðublaði á heimasíðu ÖBÍ.

Einnig má prenta eyðublaðið út og senda í hefðbundnum pósti til Kristínar M. Bjarnadóttur starfsmanns nefndarinnar á skrifstofu ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.

Undirbúningsnefndina skipa:
• Alvar Óskarsson, MS félag Íslands
• Fríða Rún Þórðardóttir, Astma og ofnæmisfélag Íslands
• Helga Magnúsdóttir, Sjálfsbjörg lsh
• Hrannar Björn Arnarson ADHD samtökin
• Karl Þorsteinsson, Ás styrktarfélag
• Vignir Ljósálfur Jónsson, HIV-Ísland

Leggjumst öll á eitt og vekjum mikla og jákvæða athygli á deginum.