Styrkar konur – stuðningshópur mið. 29. maí

Stuðningshópurinn „Styrkar konur“ kemur saman miðvikudaginn 29. maí kl. 15-16 í Setrinu, Hátúni 10. Gunnhildur Heiða, fjölskyldufræðingur leiðir hópinn og stjórnar umræðum. Hópurinn er hugsaður sem stuðningshópur fyrir konur sem eru greindar með parkinsonsjúkdóminn sem getað miðlað af reynslu sinni og fengið stuðning frá öðrum konum sem standa í sömu sporum.
Aðgangur er ókeypis og allar konur velkomnar.