Símasöfnun Parkinsonsamtakanna

Parkinsonsamtökin eru með símasöfnun í gangi þar sem hringt er í fólk og það beðið um að styrkja samtökin um 3.800 kr. í eitt skipti. Parkinsonsamtökin eru að vinna að stofnun Parkinsonseturs og söfnunarféð fer í tækjasjóð fyrir líkamsræktartæki í Parkinsonsetrið.

Þeir sem samþykkja að styrkja Parkinsonsamtökin fá sendan greiðsluseðil í heimabanka. Við sendum okkar bestu þakkir til allra sem leggja Parkinsonsamtökunum lið og hjálpa okkur við að byggja Parkinsonsetur.