Málþing: Satt og logið um öryrkja

ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir málþinginu ,,Satt og logið um öryrkja” í Háteig á Grand hótel þann 22. mars kl. 13–16.

Fyrirlesarar munu þar fara gaumgæfilega yfir kjör fatlaðs fólks á Íslandi, leiðrétta rangfærslur og draga fram hið rétta. Fulltrúi Gallup mun sömuleiðis kynna niðurstöður könnunar á viðhorfum almennings til kjara öryrkja auk þess sem von er á líflegum pallborðsumræðum.

Atli Þór Þorvaldsson formaður kjarahóps ÖBÍ heldur erindi á málþinginu en hann er fulltrúi Parkinsonsamtakanna í málefnahópnum.

Málþinginu verður streymt á visir.is og það bæði táknmáls- og rittúlkað. Við hvetjum öll til að mæta.

Hér má sjá upplýsingar um málþingið á Facebook.

Dagskrá


13:00  Ávarp formanns ÖBÍ réttindasamtaka 
Þuríður Harpa Sigurðardóttir 

13:10  Staða öryrkja sem leita aðstoðar umboðsmanns skuldar, hvað er hægt að gera? 
Sara Jasonardóttir, verkefnastjóri fræðslu og kynningarmála hjá Umboðsmanni skuldara

13:25  Viðhorf almennings til kjara öryrkja: Niðurstöður Gallup könnunar 
Jóna Karen Sverrisdóttir, viðskiptastjóri hjá Gallup

13:40  Hve mikið? Hvað margir? 
Atli Þór Þorvaldsson, formaður kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka

13:55  Kaffihlé

14:10  „Fordómar og lúxusliðið öryrkjar“ 
Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaformaður kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka

14:25  „Þær hafa það svo gott“ • Laufey Líndal Ólafsdóttir fulltrúi Pepp, grasrótar fólks í fátækt og félagslegri einangrun

14:40  Pallborð

15:40  Lokaorð 
Atli Þór Þorvaldsson, formaður kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka