Jógaflæði – Nýtt námskeið hefst 25. maí

Í mjúku jógaflæði er lögð áhersla á rólegar æfingar og góðar teygjur, jafnvægisæfingar ásamt einföldum hugleiðslum og öndunaræfingum.
 
Mjúkt jógaflæði getur aukið hreyfigetu, liðleika og jafnvægi og hentar flestum og það þarf ekki að hafa neina reynslu af jóga eða hugleiðslu. Tímarnir eru 60 mín og enda á góðri slökun.
 
4 vikna námskeið verður 25. maí – 15. júní. Tímanrnir eru á miðvikudögum kl. 10:30-11:30 og fara fram í Auga, jógasal á 4. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
 
Námskeiðið er niðurgreitt að fullu fyrir félagsfólk og maka. Hægt er að skrá sig í samtökin hér.
 
Kennari er Iris Eiríks eigandi Yogahússins, menntaður jógakennari, nuddari og flotþerapisti með áralanga reynslu.