Iðjuþjálfun í Setrinu

Guðrún J. Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi, verður í Setrinu, síðasta miðvikudag í hverjum mánuði kl. 16-17. Hún verður með einstaklingsmiðaða hópþjálfun og fræðslu um orkusparandi vinnuaðferðir. Hún mun einnig aðstoða félagsmenn við að panta hjálpartæki hjá SÍ og veita ráðgjöf um minni hjálpartæki sem hægt er að kaupa til að einfalda athafnir daglegs lífs.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Verið velkomin!

Dagsetningar:
27. febrúar
27. mars
24. apríl
29. maí

Athugið! Þeir sem vilja panta ráðgjöf varðandi hjálpartæki eru beðnir um að skrá sig á formið hér fyrir neðan.

SKRÁNING