Hugur og hendur – Nýtt námskeið hefst 28. apríl

4 vikna námskeið fyrir fólk með parkinson til að efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu. Í upphafi og lok námskeið verða mælingar í boði tengt handstyrk, vitrænni getu og lífsgæðum fyrir þá sem vilja fá mat á sinni færni.

Á námskeiðinu verður minnisþjálfun, hreyfing, þrautir, handverk, slökun og hlátur til að auka vellíðan, líkamsstyrk og færni í höndum.

Námskeiðið verður á fimmtudögum frá 28. apríl til 19. maí kl. 13-14 í Takti miðstöð Parkinsonsamtakanna á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði.

Verð: 4.000 kr. Námskeiðið er niðurgreitt af Parkinsonsamtökunum og því aðeins í boði fyrir félagsfólk í samtökunum.

SKRÁNING