Heilbrigðisþing 15. nóvember

Heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings þann 15. nóvember frá klukkan 09:00 til 15:45 á Hilton Reykjavík Nordica. Þingið ber yfirskriftina „Siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu.“

Markmiðið með þinginu er að skapa vettvang fyrir kynningu og umræður um helstu gildi og siðferðilegar áherslur sem leggja beri til grundvallar við forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Þingið er öllum opið og eru þau sem láta sig heilbrigðismál varða sérstaklega hvött til að taka þátt. Til að tryggja aðgengi allra landsmanna að þinginu verður dagskrá og umræðum streymt á slóðinni www.heilbrigdisthing.is þar sem einnig verður hægt að senda inn spurningar og ábendingar.

Við hvetjum alla áhugasama félagsmenn að taka þátt í heilbrigðisþinginu.

Smelltu hér til að skrá þig.