Date
- 30.11.2022
- Lokið
Time
- 17:00 - 18:30
Staðsetning
Námskeið fyrir uppkomin börn
Námskeið fyrir uppkomin börn fólks með parkinson verður haldið miðvikudaginn 30. nóvember kl. 17:00 í fundarsalnum Lunga á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Á þessu námskeiði munu hjúkrunarfræðingur og fjölskylduráðgjafi fara yfir helstu einkenni og áhrif Parkinson, bæði á einstaklinginn, en ekki síður þá sem næst standa. Fjallað verður um samskipti, lausnir og möguleg úrræði.
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum. Verið hjartanlega velkomin.
Labels
Leiðbeinendur
-
Soffía BæringsdóttirFjölskyldufræðingur MA