Date

05.06.2023
Lokið

Time

11:00 - 12:30

Staðsetning

Lífsgæðasetur St. Jó
Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður

Hugur og hendur á mánudögum

Hugur og hendur – hópþjálfun með fjölbreyttum æfingum fyrir fólk með parkinson og fræðslu um orkusparandi vinnuaðferðir. Iðjuþjálfar aðstoða einstaklinga við að framkvæma athafnir daglegs lífs og þær athafnir sem snúa að þeirra áhugamálum og gefa lífinu gildi.

Tímarnir á mánudögum eru kl. 11:00-12:30 verður þjálfun á fínhreyfingum og samhæfingu handa og fóta gegnum handverksgerð af ólíku tagi í boði undir leiðsögn og umsjá Fjólu þroskaþjálfa og listmeðferðarfræðings. Athugið að undirbúningur og frágangur fer fram í upphafi og lok tímans og eru þátttakendur hvattir til að hjálpa til.

Tímarnir á fimmtudögum eru kl. 13:00-13:40 verður þjálfun á grófhreyfingum, fínhreyfingum, samhæfingu handa og fóta og vitræn þjálfun gegnum hreyfingu og heilaleikfimi undir leiðsögn og umsjá Guðrúnar iðjuþjálfa og faghandleiðara.

Tímarnir fara fram í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.

Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum en nauðsynlegt er að skrá sig í hvern tíma til að tryggja sér sæti. Skráning fer fram á forminu hér fyrir neðan eða með því að hringja í s. 552-4440. Ath. að skráning hefst viku fyrir tímann og þá birtist formið hér fyrir neðan.

—-

Leiðbeiningar við skráningu:

1. Veldu dagsetningu / dagsetningar ef það er í boði

2. Veldu 1 miða. Ath. ekki er hægt að skrá fleiri í einu. Ef það þarf að skrá annan einstakling þá þarf að endurtaka ferlið.

3. Ýttu á NEXT

4. Skráðu nafn, netfang og símanúmer þátttakanda

5. Ýttu á SUBMIT

6. Takk fyrir bókunina. Þú ert núna skráð/ur og færð staðfesingu á tölvupósti.

Leiðbeinendur

Umsjón

Taktur
Taktur
Phone
552-4440
Email
parkinson@parkinson.is
Website
https://parkinson.is