Date

29.09.2022
Lokið

Time

17:00 - 18:30

Staðsetning

Safnaðarheimili Glerárkirkju
Akureyri

Fræðslufundur á Akureyri

Fjölskyldan, parkinson og þú.

Sigríður Ó. Gunnlaugsdóttir og Magnús Þorkelsson verða með fyrirlestur og samtal um sambúð sína og fjölskyldunnar við Parkinson.
Magnús sem er með Parkinson (Park-hafi), greindist fyrir fjórtán árum.
Þau hjónin munu fara yfir málin, ræða reynslu sína og hvernig þau hafa nálgast verkefnið, að fást við Parkinson. Einnig um mikilvægi þess að halda fjölskyldu sinni og nánasta umhverfi upplýstu um stöðu mála.
Fólk með parkinson er hvatt til að fjölmenna ásamt mökum, ástvinum, afkomendum og öðrum sem standa þeim nærri í baráttunni við parkinson.
Reikna má með að erindið taki 30-45 mín. Í lok fundar verður fyrirspurnum svarað og almennar umræður.

 

Umsjón

PAN
Email
parkinsonfelag@gmail.com

Parkinsonfélag Akureyrar og nágrennis