Borðtennis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum en þjálfararnir eru þau Anna Lilja Sigurðardóttir og Ingimar Ingimarsson.
Tímarnir í borðtennis eru á miðvikudögum og föstudögum kl. 11:00-12:00 í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði.
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum og það þarf ekki að skrá sig – bara mæta með íþróttaskó og vatnsbrúsa.