Iðjuþjálfun miðvikudaginn 29. maí

Guðrún J. Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi, verður í Setrinu miðvikudaginn 29. maí kl. 16-17. Hún verður með einstaklingsmiðaða hópþjálfun og fræðslu um orkusparandi vinnuaðferðir. Hún mun einnig aðstoða félagsmenn við að panta hjálpartæki hjá SÍ og veita ráðgjöf um minni hjálpartæki sem hægt er að kaupa til að einfalda athafnir daglegs lífs.

Ath að þetta er síðasti tíminn hjá Guðrúnu fyrir sumarið. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Verið velkomin!

Athugið! Þeir sem vilja panta ráðgjöf varðandi hjálpartæki eru beðnir um að skrá sig á formið hér fyrir neðan.

SKRÁNING